Góðan dag gott fólk. Það er svona heldur framlág kona sem - TopicsExpress



          

Góðan dag gott fólk. Það er svona heldur framlág kona sem situr hér fyrir framan tölvuna og fer bara ekki neitt í göngutúr núna þó ekki af því það sé hvasst það er nú alveg hægt að berjast á móti vindinum , nei, það er bara af því að hún fór í seinna lagi að sofa vaknaði líka í seinna lagi og nóg að gera hér því nú koma þær mæðgur Hrönn og Vickí í dag. Var á fundi í gærkvöldi og sölukvöldi á eftir með góðum gestum virkilega gaman, já dagurinn var góður og fær því þrjá :) :) :) Það verða alltaf nógir til að lýsa því sem er en það vantar þá sem lýsa því sem gæti orðið. Sigur kemur oft seinna og sjaldnast á hátindi hugrekkisins. Það sem þar er held ég sé frelsið, frelsið sem fylgir því að vita að ekkert vald á jörðu getur brotið þig á bak aftur, að ósigraður andi er það eina sem ekki er hægt að lifa án, að þegar allt kemur til alls er það hugrekki sannfæringarinnaar sem kemur hlutum á hreyfingu og ryður breytingum braut. Hristu af þér hömlurnar sem þú hefur leyft öðrum að leggja á þig. Þér eru engin takmörk sett. Það er ekkert sem þú getur ekki afrekað. Í lífinu er enginn sá söknuður sem ekki er unnt að komast yfir. Maður finnur ekki ný lönd nema með því að sætta sig við að sjá ekki til lands í mjög langan tíma. Þegar þú vinnur með fullorðnu fólki ertu með fólki sem venjulega er raunsætt og reynir að hafa eins konar reglu á hlutunum. En þegar þú átt barn snýst þetta allt við: allt er óvænt og á ringulreið. ...Wendy Schuman ... Munum að við getum haft heilmikil áhrif á daginn vinir mínir. Kærleikskveðjur til ykkar allra og njótið dagsins eftir bestu getu.
Posted on: Wed, 06 Nov 2013 10:25:52 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015