Jæja! Þá er síðasti naglinn í kistu lygasögunnar um Jesú Krist negldur. Útförin verður auglýst síðar. Verður gaman að hitta þessa gaura því ég er búinn að kaupa miða og iða í skinninu. Fundu grjótharðar sannanir fyrir ruglinu í undirrituðum. Sirkus Einars Andskota hefur hafið söfnun fyrir sirkustjaldi sem mun rísa í hverju einasta krummaskuði á klakanum á hringleikaferð sinni um landið og bjóða almenningi frítt uppá bíó, messu, galdra, kraftaverk, miðilsfund, heilun, nálastungur og smáskamtalækningar osf. og um leið verður afhjúpað hverskonar þrugl þetta er mönnum til skemmtunar. Trúðarnir verða atvinnulausir guðfræðingar. Veitingar í föstu og fljótandi á spottprís. Allir velkomnir!
Posted on: Wed, 09 Oct 2013 18:37:22 +0000
Trending Topics
Recently Viewed Topics
© 2015