Kæru foreldrar og nemendur, Mikil tilhlökkun ríkir fyrir - TopicsExpress



          

Kæru foreldrar og nemendur, Mikil tilhlökkun ríkir fyrir JÓLAsýningunni nk. laugardag og eru flestir búnir að tryggja sér miða. Hver fjölskylda getur að sjálfsögðu keypt eins marga miða og húsrúm leyfir-;) Við vonumst að sjálfsögðu til að allir nái að taka þátt. Það að sýna á sviði er mikil reynsla fyrir krakkana og veitir þeim reynslu og sjálfstraust sem mun nýtast þeim vel út í lífið. Þau læra að treysta 100% á sig sjálf!-;) NB! AUKARENNSLI Á FÖSTUDAGINN Í GAMLA BÍÓI. Allar æfingar falla niður á föstudaginn nk. og í staðinn verður rennsli hjá öllum hópum nema 4-6 ára kl.17.30-20 í Gamla Bíói! Nú eiga allir að hafa fengið búningablöðin (vinsamlega látið okkur strax vita ef einhverjum hefur ekki borist tölvupósturinn). Við viljum biðja alla nemendur að koma eins mikið tilbúna eins og þeir mögulega geta og greidd í samræmi við lýsingu á búningarblöðunum. Andlitsförðun fer eingöngu fram á sýningardaginn-;). Í þessari viku fer einnig fram mátun á þeim fatnaði sem skólinn útvegar. Ef að þeir fylgihlutir sem beðið er um fást ekki í þeim verslunum sem nefndar hafa verið, Sports Direct, Lindex, Partýbúðinni og Outletum, viljum við einnig benda á dansbúðina Arenu og Ástund.
Posted on: Mon, 25 Nov 2013 15:36:16 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015