Meira sic transit gloria mundi: mér finnst einsog skilningi - TopicsExpress



          

Meira sic transit gloria mundi: mér finnst einsog skilningi fólks á húmor fari hrakandi. Fólk sem varð fyrir helförinni sagði brandara um helförina á meðan á helförinni stóð. Aðstandendur þeirra sögðu brandara eftir að búið var að helfara þeim. Afkomendur þeirra gera það enn. Það þýðir ekki að helförin sem slík sé fyndin. En tilgangur fyndni, gríns, kímni, fíflaláta, er allt annar en að veita öllu því sem á sér stað í gríninu siðferðislegt samþykki. Grín er einhvers konar samfélagsrýni – erfið og flókin – og það á ekki að láta með það einsog það sé lítilsvert eða einfalt. Þetta segi ég eins þungbrýndur og alvarlegur og ég verð: grín skiptir máli og það að hafa húmor er mikilvægt. Það er til vont grín, illt grín, mannskemmandi og svo framvegis – en við höfum ekkert við þessi tabú að gera.
Posted on: Wed, 24 Jul 2013 14:19:41 +0000

Recently Viewed Topics




© 2015