Nú er síðasta vaktin á enda, var á næturvakt. Kveð þetta - TopicsExpress



          

Nú er síðasta vaktin á enda, var á næturvakt. Kveð þetta frábæra fólk með söknuði, margir reynst manni afar vel, enda hefur það sennilega séð umkomuleysið í strögli manns við framandi tölvukerfi og ókunnan tækjabúnað. Hef lært margt sem ég mun tileinka mér í framtíðinni. Það að fara sem farandhjúkki er besta endurmenntun sem hægt er að hugsa sér. Hins vegar vil ég ráðleggja öllum sem eru að hugleiða að fara, að fara ekki fyrir minna en 2 vikur. Fyrsta vikan er erfið og það er í viku 2 sem maður fer að geta bjargað sér að einhverju leyti og að kynnast fólki. Það er svo lykillinn að því að fara heim á ný með þá tilfinningu að þetta hafi verið jákvæð reynsla.
Posted on: Sun, 11 Aug 2013 06:30:42 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015