Oft er mikið deilt á múslíma hér á fasbók. Þetta er - TopicsExpress



          

Oft er mikið deilt á múslíma hér á fasbók. Þetta er orðinn mikill ósiður víða á Vesturlöndum. Freistandi er að álíta að hernaðarvélin, nefnd "the miltary- industrial complex", í Bandaríkjunum eigi hér hlut að máli, útvega þurfti nýjan óvin eftir hrun Sovétríkjanna og Islam varð fyrir valinu. Samt hika vestræn ríki ekki að styðja öfgafulla múslíma þegar það hentar þeim. Oft eru það bókstafstrúaðir kristnir mótmælendur sem einkum ráðast á múslímska bókstafstrúarmenn. En þessir tveir hópar eru mjög sviplíkir og að mati mínu báðir óaðlaðandi og leiðinlegir En okkur vantar tilfinnanlega tölfræði um þessi mál. Hve margir múslímar í Evrópulöndum reyna eftir bestu getu að laga sig að löndum og siðum búsetulandsins og hve margir vilja aðeins fylgja siðum upprunalandsins? Hvað situr stór hluti múslíma í fangelsi miðað við fólk almennt? Hver er glæpatíðni múslíma? Hvað um áfengis- og fíkiniefnaneyslu þeirra, þetta stærsta vandamál vestrænna landa? Hefur verið gerð athugun á meðferð annars vegar múslímskra karla og hins vegar kristinna á konum sínum? Fleira mætti nefna: Þangað til við fáum þessar tölur erum við aðeins að ræða í ágiskunum.
Posted on: Sun, 06 Oct 2013 04:17:59 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015