Stundum nenni ég ekki þessum heimi. Rússland og önnur lönd - TopicsExpress



          

Stundum nenni ég ekki þessum heimi. Rússland og önnur lönd eru að berja niður réttindi og líf LGTQ fólks. Staða flóttamanna er hræðileg í flestum löndum og við á Íslandi gerum lítið sem ekkert í því. Efnavopnaárás í Sýrlandi í dag og hundruðir deyja. Bradley Manning dæmdur í 35.ára fangelsi fyrir að segja sannleikann. Þeir ríku verða alltaf ríkari og þau fátækari fátækari og milljónir deyja úr hungri. Obama er vinsæl gaur fyrir að fyrirskipa drone strikes. Palístinumenn missa alltaf meira og meira land til Ísraels. Hver dagur sem eftir er á þessu ári er tekinn á "yfirdrætti" sem komandi kynslóðir þurfa að borga vegna ofneyslu nútíma samfélagsins. Samt er þetta bara fréttir sem við lesum hugsum með okkur "æjj þetta er leiðinlegt" og förum svo að kaupa kók.
Posted on: Wed, 21 Aug 2013 14:49:07 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015