Um daginn ók ég norður Kjöl. Ein af farþegunum var - TopicsExpress



          

Um daginn ók ég norður Kjöl. Ein af farþegunum var Íslendingur en sagði öllum að hann væri Rússi. Þessi ágæti maður spjallað dálítið á leiðinni og mestum tíma eyddi hann í að mæra þá Jóhannes kenndan við Bónus og þó meira Björgólf Guðmundsson. Sagðist hafa verið á flakki í mörg ár og Pútín væri lang besti kostur fyrir Rússa. Hann sagðist lifa á gulum baunum og vatni 4 daga vikunar en borða mat hina dagana. Sagðist hafa fengið 2 hjartaáföll og væri með vírus í hjartanu. Mér var farið að gruna að þessi vírus hefði kannski farið víðar og endað uppí í höfðinu á honum enda sagðist hann vera algjör reglumaður en betlaði tóbak af liðinu.
Posted on: Sat, 07 Sep 2013 11:16:48 +0000

Recently Viewed Topics




© 2015