Ung nýgift hjón voru komin í hjónasvítuna á hótelinu í - TopicsExpress



          

Ung nýgift hjón voru komin í hjónasvítuna á hótelinu í brúðkaupsferðalaginu. Þegar þau voru að afklæðast skutlaði maðurinn, sem var mjög þrekvaxinn og stór, buxunum sínum til brúðarinnar og sagði: ,,Hérna, farðu í þær! Hún fór í þær en þurfti báðar hendur til að halda þeim uppi þar sem þær voru allt of víðar. ,,Ég get ekki verið í buxunum þínum,” sagði hún. ,,Það er alveg rétt,” svaraði eiginmaðurinn, og gleymdu því aldrei. Ég er húsbóndinn og það er ég sem geng í buxum í þessari fjölskyldu!” Brúðurin snaraði sér þá úr nærbuxunum og sagði brúðgumanum að fara í þær. Hann reyndi en náði þeim aðeins upp að hné. ,,Fjandinn!” sagði hann. ,,Ég kemst ekki í nærbuxurnar þínar!” ,,Skarplega athugað,” svaraði hún. ,,Og þannig verður það þar til viðmót þitt breytist!
Posted on: Mon, 30 Sep 2013 13:53:00 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015