Ungur maður var ráðin í byggingardeild BYKO í Hafnarfirði, - TopicsExpress



          

Ungur maður var ráðin í byggingardeild BYKO í Hafnarfirði, það var regla hjá þeim í byggingardeildinni að gera at í nýjum starfsmönnum, senda þá einhverja vitleysu eða panta út í hött. Svo var það seinni part fyrstu vikunnar sem hann var í starfinu að það er hringt og hann svarar. Það er byggingardeildin úr Rekjavík sem er á línunni. Heyrðu vinur við erum í vandræðum, það er stór kúnni hjá okkur sem var að panta 200 kvistagöt og þau eru uppseld hjá okkur, viltu drífa þig niður á lagerinn og finna fyrir mig 200 stykki af kvistagötum og senda það í snatri til okkar. Strákurinn sem var skýr og fljótur að hugsa, sagði að bragði, því miður þau eru uppseld hjá okkur líka. Ha! Hvernig stendur á því??? Áttu virkilega engin kvistagöt til, strákur!!! Nei, því miður, ég er nýbúin að selja öll sem við áttum til. Hvað ertu að segja! Og hver keypti þau? Nú það kom hingað smiður sem vantaði þau í rassgöt á rugguhestum. Það þarf ekki að taka fram að það var ekki reynt að gera at í þessum dreng aftur.
Posted on: Tue, 02 Jul 2013 00:24:53 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015