Við hjónakornin komin heim á Grundó eftir dásamlega helgi - TopicsExpress



          

Við hjónakornin komin heim á Grundó eftir dásamlega helgi hjá vinum á Ólafsfirði. Sakna alltaf Ólafsfjarðar og vina minna þar. Kíktum á handverkshátíðina á Hrafnagili og á súpukvöldið og fiskidaginn mikla á Dalvík. Freddy Mercury tónleikarnir voru frábærir og flugeldasýningin enn frábærari. Þeir kunna þetta á Dalvík. Dásamlegast var þó að hitta allt það góða fólk sem við hittum, félaga, vini, fermingarsystkin, starfsfélaga, nemendur bæði núverandi og fyrrverandi, frændfólk o.fl. o.fl. Fengum gott veður og svo mikið af flottum veitingum að ég ætla að hafa skyr alla næstu viku. Hún Steina vinkona er náttúrulega engri lík og ekki voru veitingarnar heldur af skornum skammti hjá honum Sigga bróður hennar. Ég hafði ekki komið til Ólafsfjarðar frá því um haustið 2010 og mikið er bærinn fallegur, já bara allur fjörðurinn. Takk kærlega fyrir okkur Steina og Gestur, Eva og Siggi :-)
Posted on: Sun, 11 Aug 2013 23:36:02 +0000

Trending Topics



style="min-height:30px;">
Hoy, 22 de noviembre, es el dia del Musico. Si me preguntan,
Cosillas pequeñas sobre mí : 1.-Tengo 15 años y me llamo

Recently Viewed Topics




© 2015