Ágæti kjósandi, Nú hafa yfir 34 þúsund manns tekið undir - TopicsExpress



          

Ágæti kjósandi, Nú hafa yfir 34 þúsund manns tekið undir áskorun okkar til Alþingis um að lækka ekki veiðigjaldið. Í morgun hófst önnur umræða um málið á Alþingi sem þýðir að það styttist væntanlega í að málið verið afgreitt frá Alþingi. Nú er lag að gera kraftaverk á lokasprettinum með aðeins örlitlu framlagi frá hverju okkar. Gerum örlítinn samning við okkur sjálf um að finna tvo aðila sem hafa ekki skrifað undir nú þegar, ættingja, vini eða samstarfsfólk, og fá viðkomandi til að skrifa undir áskorunina með okkur. Tryggjum saman að þjóðin verði ekki sniðgengin í þessu mikilvæga máli. Baráttukveðjur!
Posted on: Fri, 28 Jun 2013 12:29:16 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015