Ég tilheyri þeim lífeyrishópi sem hef það nógu gott eins og - TopicsExpress



          

Ég tilheyri þeim lífeyrishópi sem hef það nógu gott eins og ég skilgreini það. Ég hef ekkert fengið frá Tryggingarstofnun en er með 335.000 kr. í lífeyri eftir skatt (sem nemur 133.000 kr.) Ég hef verið stoltur af skattinum, að leggja til ríkissjóðs miklu meira en ég þigg þaðan á þessum erfiðu tímum. En nú var ég að fá 2 x 22.945 kr. frá Tryggingarstofnun vegna nýrra laga um lífeyri. Afstaða mín til þessa er tvíbent. Annars vegar skil ég afstöðu þeirra sem ekki vilja tekjutengja grunnlifeyri. Hins vegar skammast ég mín fyrir það að þiggja að nauðsynjalausu fé sem betur hefði farið til láglaunaðra lífeyrisþega.
Posted on: Fri, 02 Aug 2013 02:43:14 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015