Ég var að koma úr tveggja tíma hjólatúr, það var yndislegt - TopicsExpress



          

Ég var að koma úr tveggja tíma hjólatúr, það var yndislegt í frábæru veðri. Ég tók myndir að vanda en kem þeim ekki inn í tölvuna því að hún vill ekki lengur kannast við myndavélina mína, það hefur svo sem áður hlaupið svona ólund í tölvuna og það síðan lagast að sjálfum sér. þeir hjá vodafon geta ekkert aðstoðað mig og benda mér á að snúa mér til þeirra sem ég keypti myndavélina hjá. það kostar 5.000 kr að reka nefið inn hjá þeim svo að ég sleppi því, ég vona bara að þetta lagist að sjálfum sér eins og svo oft áður, ég vona að þetta sé bara tímabundin ólund.
Posted on: Fri, 19 Jul 2013 19:04:13 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015