Í ljósi þess að undirrituð var sjálf 6 merkur þegar hún - TopicsExpress



          

Í ljósi þess að undirrituð var sjálf 6 merkur þegar hún ákvað að kíkja í heiminn, er gaman að skoða aðstöðu-muninn nú rúmlega 40 árum síðar. Þá var ekki til nein vökudeild og ég bara geymd í súrefniskassa á Sjúkrahúsi Selfoss. Mamma var óðar send heim, enda ekki talið ráðlegt að hún flæktist mikið fyrir fagfólki við umönnun ungabarnsins. En hún náði víst að kría út eitthvað heimsóknarleyfi. Systur mínar, þá fjögurra og fimm ára gamlar, voru svo notaðar sem mjólkurpóstar og sendar með daglegan skammt af brjóstamjólk til handa eymingjanum. Á þessu stóð um tveggja og hálfsmánaðarskeið, ungs læknar mátu það svo að foreldrum mínum væri treystandi til annast króann. Var hann sendur heim prontó og varð ekki meint af.
Posted on: Thu, 22 Aug 2013 19:20:38 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015