Það er merkilegt hvað náunginn hefur pervertískan áhuga á - TopicsExpress



          

Það er merkilegt hvað náunginn hefur pervertískan áhuga á því sem við heilsumelirnir látum ofan í okkur... og því sem við látum ekki ofan í okkur. En ekkert er sagt við manninn með rækjusamlokuna. Það virðist vera alþjóðlegt skotleyfi að stinga smettinu ofan í nestisbox sem er stútfullt af hollustu... og fitja svo upp á nefið með vorkunnarsvip. "Máttu ekki borða X og Y?" Við sem stundum heilbrigðan lífssíl aðhyllumst ekki boð og bönn. Við fengum ekki bréf frá Hagstofunni, heldur veljum við að sleppa ákveðnum mat á ákveðnum tímum. Enginn matur er runninn undan rifjum Satans, og allt er leyfilegt í hófi og á réttum tímasetningum. Til dæmis einfaldur sykur er gagnlegur eftir harðkjarna járnrífingar. Að mega ekki eða velja er stór munur á hugarfari.
Posted on: Fri, 21 Jun 2013 09:16:52 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015