Þetta hlýtur að vera spaug ársins. Eftir að Sigurbjörg - TopicsExpress



          

Þetta hlýtur að vera spaug ársins. Eftir að Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir hafði innan gæsalappa eftir mér setningu, sem ég skrifaði aldrei, í ótal fjölmiðlum, þar á meðal hinum víðlesnu netmiðlum Huffington Post og Monde diplomatique, segir hún nú, að umræður okkar — athugasemd mín og leiðrétting hennar — hafi átt að fara fram á akademískum vettvangi, en ekki í fjölmiðlum! Hún bætir við, að ég hafi verið að hóta henni og þagga niður í henni, þegar ég fór fram á afsökunarbeiðni og leiðréttingu, sem hún þó hefur samþykkt! Er ekki aðalatriðið að hafa það, sem sannara reynist?
Posted on: Thu, 26 Sep 2013 07:17:09 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015