Því var mótmælt víða nú í sumarlok að Þjóðkirkjan - TopicsExpress



          

Því var mótmælt víða nú í sumarlok að Þjóðkirkjan tæki þátt í hátíð þar sem predikarinn Franklin Graham væri aðalnúmerið, en því fékkst ekki breytt. Biskup Íslands ætlar að halda ræðu á Hátíð vonar um helgina. Þá brugðu menn á það ráð að panta alla miðana á hátíðina, án þess að ætla sér að mæta. Miðarnir voru ógiltir og endurútgefnir og fást nú aðeins gegn því að upp sé gefinn söfnuður þess sem pantar og sækir. Graham er harður andstæðingur hjónabands samkynhneigðra - og ýmislegs annars, en það er ekki síst viðhorf hans til samkynhneigðra sem farið hefur illa í fólk. Þóra ræddi þessi mál við Franklin Graham.
Posted on: Sat, 28 Sep 2013 12:27:09 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015