Konur: Konur bera með sér styrk sem karlar dáðst að. Þær - TopicsExpress



          

Konur: Konur bera með sér styrk sem karlar dáðst að. Þær ala börn, þola hvers kyns harðræði og byrðar en gefa frá sér hamingju, ást og gleði. Þær brosa þó þær langi til orga. Þær syngja þó þær langi til að gráta. Þær gráta þegar þær eru hamingjusamar og hlæja þegar þær eru taugaveiklaðar. Konur bíða við símann eftir tilkynningu um að vinirnir hafi komist heilu og höldnu heim hafi þeir ekið í gegnum hríðarbyl. Þær geta annast börn og um leið starfað sem framkvæmdastjórar, lögfræðingar, læknar, verið mótorhjólagellur eða bara konan í næsta húsi. Þær geta klæðst jakkafötum, kjólum, gallabuxum og einkennisbúningum. Konur berjast fyrir því sem þær trúa á. Þær standa upp gagnvart óréttlæti. Þær eru reiðubúnar að leggja á sig meiri vinnu til að koma börnum sínum að í betri skólum eða fjölskyldu sinni að hjá betri lækni. Þær fylgja hræddum vini sínum til læknis. Konur eru heiðarlegar, tryggar og umburðarlyndar. Þær vita að kraftur liggur í þekkingunni. En þær vita einnig hvernig hægt er að nota mjúku hliðina til að ná fram þeim áhrifum sem til þarf. Hjarta kvenna brestur þegar vinur fellur frá. Þær syrgja ef fjölskyldumeðlimur deyr en eru þó sterkar þegar þær halda að engin styrkur sé eftir. Kona getur gert rómantískt kvöld að ógleymanlegri stundu. Hjarta konu er krafturinn sem knýr veröldina áfram. Konur ala ekki aðeins börn heldur gefa sínum nánustu vonir og gleði. Þær hughreysta þá sem á þurfa að halda. Þær gefa vinum sínum og fjölskyldu siðferðilegan stuðning og það eina sem þær vilja á móti er faðmlag, bros og að þú gefir frá þér hið sama til fólks sem þér er kært. Karlmenn: Karlar eru ágætir til að lyfta þungu drasli.
Posted on: Sat, 06 Jul 2013 00:44:05 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015